Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 279/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 279/2023

Fimmtudaginn 10. ágúst 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 5. júní 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. mars 2023, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 1. desember 2022 og var umsóknin samþykkt 20. desember sama ár. Þann 13. febrúar 2023 var kærandi boðaður á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar sem fara átti fram 16. febrúar 2023. Kæranda var greint frá því að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Þann 15. febrúar 2023 var kæranda send áminning á áðurnefndri boðun. Kærandi hvorki mætti á námskeiðið né boðaði forföll. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 1. mars 2023, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda til þess að hafa ekki mætt á boðað námskeið. Skýringar bárust frá kæranda 2. mars 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. mars 2023, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Frekari skýringar bárust frá kæranda 4. maí 2023 og var málið tekið fyrir hjá Vinnumálastofnun að nýju. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 8. maí 2023, var fyrri ákvörðun staðfest þar sem sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 5. júní 2023. Með bréfi, dags. 6. júní 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 7. júlí 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. júlí 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá því að hann hafi ekki komist á námskeiðið Vinnustofa í ferilskrágerð, sem hafi verið haldið þann 16. febrúar 2023 hjá Vinnumálastofnun vegna veikinda hjá yngsta barni hans.

Kærandi hafi verið settur á biðtíma sem honum þyki furðulegt. Í ljós hafi komið að skjal sem kærandi hafi sent Vinnumálastofnun með rökstuðningi hans hafi aldrei verið opnað og hann samt sem áður settur á biðtíma. Kærandi hafi talað við starfsmenn Greiðslustofu sem hafi ráðlagt honum að mæta á starfsstöð Vinnumálastofnunar. Við komuna þangað hafi honum verið tjáð að ekki væri hægt að opna skjalið með rökstuðningnum. Því hafi kærandi handskrifað bréf á staðnum um að veikindi barns hafi verið ástæðan fyrir fjarveru hans á umrætt námskeið. Starfsmaður Vinnumálastofnunar hafi í kjölfarið stimplað skjalið og ljósritað. 

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 1. desember 2022. Með erindi, dags. 20. desember 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 13. febrúar 2023 hafi kærandi verið boðaður á námskeið í ferilskrágerð á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem hafi átt að fara fram þann 16. febrúar 2023 klukkan 10:00. Ástæða þess að kærandi hafi verið boðaður á umrætt námskeið hafi verið sú að hann hafi ekki verið með ferilskrá í kerfum stofnunarinnar. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að boða án ástæðulausrar tafar. Kæranda hafi jafnframt verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Umrædd boðun hafi verið send á uppgefið netfang kæranda, með tilkynningu á „Mínum síðum“ og með smáskilaboðum í farsíma. Þá hafi kæranda verið send áminning um umrætt námskeið með tilkynningu á uppgefið netfang og með smáskilaboðum í farsíma þann 15. febrúar 2023. Í umræddri áminningu hafi sömuleiðis verið áréttað fyrir kæranda að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kærandi hafi hins vegar hvorki mætt á umrætt námskeið né boðað forföll.

Með erindi, dags. 1. mars 2023, hafi verið óskað eftir skýringum kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt til umrædds námskeiðs. Áréttað hafi verið að ef kærandi hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Vinnumálastofnun hafi borist skýringar kæranda þann 2. mars 2023. Að sögn kæranda hafi hann viljað mæta á umrætt námskeið en dóttir hans hafi verið veik og hann ekki getað útvegað barnapössun með svo stuttum fyrirvara.

Með erindi, dags. 3. mars 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ástæða þess hafi verið sú að kærandi hafi hvorki mætt né boðað forföll á námskeið í ferilskrágerð.

Þann 4. maí 2023 hafi Vinnumálastofnun borist frekari skýringar frá kæranda. Þar komi fram að kærandi sé einstæður faðir með þrjú börn. Yngsta barn hans hafi verið veikt morguninn sem námskeiðið hafi verið haldið. Kæranda hafi minnt að hann hefði hringt og látið Vinnumálastofnun vita. Hann hafi áður sent stofnuninni skýringarbréf en svo hafi virst vera að ekki væri hægt að opna bréfið.

Í kjölfar þess að framangreindar skýringar hafi borist Vinnumálastofnun hafi mál kæranda verið tekið fyrir að nýju. Með erindi, dags. 8. maí 2023, hafi kæranda hins vegar verið tilkynnt að það væri mat stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun í máli hans, enda hefði sú ákvörðun að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir að ný gögn hefðu borist í máli hans.

Vinnumálastofnun þyki rétt að taka fram að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli kæranda hafi ákvörðun stofnunarinnar, dags. 3. mars 2023, meðal annars verið byggð á þeim skýringum sem kærandi hafi sent stofnuninni þann 2. mars 2023 og kærandi hafi greint frá að erfiðlega hafi gengið að opna. Þó leita hafi þurft leiða til að opna umrætt skjal sé það þó meðal gagna í máli kæranda.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Eitt af almennum skilyrðum greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a-lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit en samkvæmt [h-lið] 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun bjóði upp á. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Atvinnuleitendum beri samkvæmt 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að hafa reglulega samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um greiðslu atvinnuleysisbóta komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á námskeið í ferilskrágerð sem hafi verið haldið þann 16. febrúar 2023, en áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“, þar sem tilgreind hafi verið tímasetning og staðsetning. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Kæranda hafi jafnframt verið send áminning um umrætt námskeið degi áður en það hafi átt að hefjast. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni á umrætt námskeið en þær lúti að því að yngsta barn hans hafi verið veikt. Kærandi hafi greint frá því að honum minni að hann hafi hringt í stofnunina og tilkynnt forföll sín. Kæranda hafi verið veitt skýr fyrirmæli þess efnis að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Að auki hafi kæranda verið veittar leiðbeiningar um það hvernig tilkynna bæri forföll. Af fyrirliggjandi gögnum í máli kæranda verði hins vegar ekki séð að hann hafi tilkynnt forföll sín, hvorki símleiðis né eftir þeim leiðum sem stofnunin hafi óskað eftir að forföll yrðu tilkynnt.

Með vísan til alls framangreinds, og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Með því að hafa hvorki mætt á námskeið í ferilskrágerð né boðað forföll hafi kærandi brugðist skyldum sínum samkvæmt 7. mgr. 9. gr. og 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Honum beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var boðaður á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar þann 13. febrúar 2023 sem fara átti fram þann 16. febrúar 2023. Kæranda var greint frá því að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfangið [email protected]. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Vinnumálastofnun ítrekaði fyrrgreinda boðun með skilaboðum þann 15. febrúar 2023. Kærandi hvorki mætti á námskeiðið né tilkynnti forföll. Kærandi hefur veitt þær skýringar að hann hafi verið heima með veikt barn.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt í vinnumarkaðsúrræði sem honum var gert að sækja. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. mars 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum